Reykjavík hefur orð á sér fyrir að vera mikil skemmtanaborg.
Þetta byggir meðal annars á því að skemmtistaðir eru opnir mjög lengi fram eftir nóttu – sumir til fimm á morgnana.
Þeir sem hafa ferðast erlendis vita að oftast er erfitt að finna öldurhús og skemmtistaði sem hafa svo langan opnunartíma.
Unga fólkinu í Heimdalli finnst þetta ekki nóg, það vill hafa staðina opna enn lengur. Þetta er greinilega mikið þjóðþrifamál í huga þess.
En mætti þá ekki byrja á bæjarfélögunum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur meirihluta. Það mætti hafa opið alla nóttina eða bara alltaf í Garðabæ, Seltjarnarnesi og Kópavogi.
Þá gæti orðið mikið stuð og þessir bæir yrðu nafntogaðir fyrir skemmtanahald, ekki síður en Reykjavík.
Hér má sjá eina af auglýsingum Heimdallar þar sem hvatt er til þess að skemmtistaðir séu opnir lengur. Hún hefur fengið meira en níu þúsund hitt á YouTube.