fbpx
Mánudagur 07.júlí 2025
Eyjan

Uppeldi í fátækrahverfinu Höfðaborg, á flótta undan nasistum til Íslands

Egill Helgason
Þriðjudaginn 4. mars 2014 20:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvær konur eru í aðallhutverki í Kiljunni á miðvikudagskvöld.

Það er annars vegar Björg Guðrún Gísladóttir. Hún hefur sett saman minningabók sem nefnist Hljóðin í nóttinni.   Björg er alin upp í Höfðaborginni sem á sjötta og sjöunda áratugnum var versta fátækrahverfi í Reykjavík. Björg bjó við hræðilegan aðbúnað, mikið heimilisofbeldi og einnig kemur kynferðisofbeldi mikið við sögu. Hún gekk í skóla þar sem var farið illa með börn úr Höfðaborginni og þá krakka sem áttu lítið undir sér.

621262_10151138484009405_861069523_o

Hins vegar er það Melitta Urbancic. Saga hennar er mjög heillandi. Hún flutti til Íslands ásamt manni sínum rétt fyrir stríð. Melitta var frá Austurríki, af gyðingaættum, og þurfti að forða lífi sínu undan nasistum. Hún var hámenntuð kona, gekki virta háskóla og iðkaði leiklist og bókmenntir. Úr hámenningunni þurfti hún svo að koma til Íslands, þar sem hún bjó æ síðan með manni sínum, tónlistarmanninum Victor Urbancic. Melitta orti ljóð sem nú eru að birtast á prenti í tvímála ljóðabók sem nefnist Frá hjara veraldar.

Melitta_Urbancic

Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Skrifað í stjörnurnar eftir John Green, Marco-áhrifin eftir Jussi Adler-Olsen og Að gæta bróður síns eftir Antti Tuomainen.

Við fáum svo að heyra hverjar eru uppáhaldsbækur Vilhjálms Antons Jónssonar sem sló í gegn um jólin með Vísindabók Villa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól
Eyjan
Fyrir 1 viku

Safna undirskriftum til að skora á Alþingsmenn að stöðva málþófið

Safna undirskriftum til að skora á Alþingsmenn að stöðva málþófið