Sigurveig kona mín hefur smátt og smátt verið að ná því sem mætti kalla jógastig í gerð makkaróna að frönskum hætti.
Þessar kökur njóta afskaplega mikilla vinsælda víða um heim, ég fullyrði að makkarónur Sigurveigar standist samanburð við það besta sem maður sér erlendis.
Þær eru gerðar af ást og umhyggju – og það getur verið erfitt að baka þær, því það má helst ekki gerast þegar er rigning og loftþrýstingurinn er lágur. Þannig að þetta er mikil list.
Hún gerir auðvitað ekki mikið magn af þessu, en þær fást stundum í verslunum Frú Laugu.