Við höfum talsvert heyrt talað um efnahagsmál í dag.
Bjarni Benediktsson var á fundi
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson talar á fundi í London og segir að ríkisstjórnin hafi trú á íslensku krónunni og að hún muni ná styrk sínum aftur (hún má samt ekki verða of sterk, við höfum ekki góða reynslu af því).
„Ríkisstjórnin hefur trú á íslensku krónunni og er staðföst í að treysta efnahagsstjórnina í því skyni að skjóta undir hana stoðum.“
Bjarni Benediktsson talaði á fundi hjá Landsbankanum frekar varlega um fjárfestingarkosti á Íslandi, en helst vekur athygli í ræðu hans að hann talaði ekki um niðurfellingu skulda, heldur nauðsyn þess að greiða niður hallann á ríkissjóði og forða þjóðinni þannig frá háum vaxtagreiðslum.
En Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, skrifar grein þar sem hún segir að Ísland sé hvorki nógu aðlaðandi fyrir fólk né fyrirtæki.
„Fólk fæst ekki lengur til að flytja til landsins og vinna í íslenskum fyrirtækjum nema í undantekningartilvikum vegna þess að lífskjörin eru bara svo slæm. Það er bara þannig að Ísland er ekki nógu aðlaðandi fyrir hvorki fólk né fyrirtæki.“