fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Óöryggi og hræðsla

Egill Helgason
Fimmtudaginn 25. júlí 2013 13:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það leynir sér ekki að mikið óöryggi er innan ríkisstjórnarinnar. Það er engin skjót leið til að koma af stað hagvexti á Íslandi, „stækka kökuna“, það tekur langan tíma að semja við erlenda kröfuhafa og afnema gjaldeyrishöft. Það er varla hægt að lækka skatta og nú er helst talað um niðurskurð. Hann felst þá líklega í fækkun ríkisstarfsmanna, en þar er ekki mikið svigrúm – starfsmennirnir eru langflestir í heilbrigðis- og menntakerfinu þar sem þegar hefur verið skorið inn að beini, eins og lesa má í þessari grein eftir Ómar H. Kristmundsson, prófessor í opinberri stjórnsýslu.

Guðsteinn Einarsson, kaupfélagsstjóri í Borgarnesi, skrifar grein í Skessuhorn þar sem hann ber saman ástandið á Íslandi og í Svíþjóð. Greininni lýkur með svofelldum orðum:

„Við búum einfaldlega við hagkerfi þar sem verðlag er á sífelldri uppleið. Stjórnlaust vegna afleitrar efnahagsstjórnunar, stjórnlaust því heildarhagsmunir víkja alltaf fyrir sérhagsmunum. Við viljum ekki ganga til samstarfs við aðrar þjóðir í efnahagsmálum vegna ímyndunarveiki. Við ímyndum okkur að þeir muni taka af okkur fiskinn, vatnið, rafmagnið, olíuna í Norður-Íshafinu sem við vonumst nú til að muni bjarga efnahag þjóðarinnar. Við erum hræddari við breytingar en óbreytt ástand. Hrædd við samstarf af því að við viljum fá allt en en ekki láta neitt af hendi á móti. Það eina sem við ættum að vera hrædd við er óbreytt ástand því það mun líklega leiða til annars „hruns“ eða ættum við frekar að segja, til áframhaldandi og viðvarandi „forsendubrests“.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 12 klukkutímum
Óöryggi og hræðsla

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt