Ég var daufur í dálkinn seinni partinn í gær, átti erfitt með svefn og vaknaði með kvíðahnút í maganum.
Í morgun fór ég að velta því fyrir mér hvað væri að.
Komst að því að ég hefði verið of mikið á Facebook um helgina. Það var próblemið. Ég var kominn með of stórann skammt af þrasi og neikvæðni.
Og í hugann kom þessi vísa eftir kímniskáldið vestur-íslenska, Káinn, sem orti svo um deilur Íslendinga í vesturheimi:
Þetta er ekki þjóðrækni
og þaðan af síður guðrækni
heldur íslensk heiftrækni
og helvítis bölvuð langrækni.