Talsverður fjöldi bóka er til umfjöllunar í Kiljunni í kvöld.
Við fræðumst um Íslensku teiknibókina, sem er gamalt handrit sem inniheldur teikningar frá síðmiðöldum – Guðbjörg Kristjánsdóttir sem sér um útgáfuna telur að þar megi finna handbragð fjögurra teiknara.
Andri Snær Magnason segir frá Tímakistunni, það er ævintýrabók, fyrsta skáldverk sem hann sendir frá sér í langan tíma.
Við fáum í þáttinn Eirík Guðmundsson en hann hefur sent frá sér skáldsöguna 1983 sem er að nokkru leyti byggð á uppvexti hans í Bolungarvík og Sif Sigmarsdóttur sem er höfundur bókar sem nefnist Freyjusaga – Múrinn. Valur Gunnarsson segir frá skáldsögunni Síðasti elskhuginn.
Gagnrýnendur þáttarins fjalla um tvær bækur, það eru Stúlka með maga eftir Þórunni Erlu og Valdimarsdóttur og Kamban eftir Svein Einarsson.
Blað úr Íslensku teiknibókinni.