Eins og margir aðrir byrjaði ég að spila QuizUp þegar leikurinn var fyrst kynntur á netinu.
Fjölskyldan var öll að spila – hjá mér er þetta fyrsti tölvuleikur sem ég nota síðan Tetris var og hét.
Þannig að QuizUp hefur náð langt út fyrir raðir þeirra sem venjulega spila tölvuleiki. Mér er málið reyndar aðeins skylt, bróðir minn er hluthafi í Plain Vanilla og situr í stjórn fyrirtækisins.
Sjálfur spilaði ég aðallega í deild klassískrar tónlistar, jazz, bókmennta og landafræði. Sigurveig, kona mín, reyndist afar sterk á sviði matargerðar, en Kári, sonur okkar, veit allt um Simpsons og South Park – fyrir utan að vera liðtækur í mörgu öðru. Ég óttast að hann lendi í Gettu betur þegar hann fer í menntaskóla.
Ég fann samt að áhuginn á leiknum minnkaði nokkuð fljótt. Það er einn vandinn við svona leiki – að gera þá nógu „ábanavindandi“ eins og það heitir hér á heimilinu. Mér skilst að til sé fullorðið fólk sem spilar Candy Crush án afláts.
Í gær opnaði Kári Quiz Up aftur og sýndi mér flokka sem höfðu bæst við. Þar var meðal annars myndlist. Ég eyddi löngum tíma í hana. Þarna er að finna níðþungar spurningar um til þess að gera obskúra listamenn eins og Carraci, Fiorentino, Amigoni, Bingham, Moholy-Nagy, Balla, Hodgkin, Appel – og Erró.
Þetta er alvöru, og, ég verð að segja fyrir mitt leyti – þetta viðheldur áhuganum.
Mér er sagt að Plain Vanilla eigi mikið inni. Það er ekki enn búið að gefa út QuizUp fyrir Android síma. Það er nánast eins og understatement að velja Þorstein Friðriksson sem frumkvöðul ársins. Úti í heimi bíður fullt af nýjum notendum.
Málverkið Perseus frelsar Andrómedu eftir Piero di Cosimo er að finna í myndlistarhluta QuizUp. Hann er níðþungur og fræðandi.