Í Bretlandi er mikil umræða um nauðsyn þess að hækka launin. Það er einfaldlega talin vera forsenda fyrir því að efnahagsbati sem hófst á þessu ári haldi áfram.
Meðal þeirra sem segja þetta er sjálfur framkvæmdastjóri samtaka breskra atvinnurekenda, John Cridland, líkt og sjá má í þessari frétt sem birtist á mbl.is.
Sömu viðhorf má lesa hjá Larry Elliott, efnahagsritstjóra Guardian. Hann segir að Bretar þurfi kauphækkanir. Það muni ekki þýða fyrir þá að upplifa annað ár þar sem verð hækkar meira en laun. Slíkt muni tefja alvöru efnahagsbata og hægja aftur á aukinni eyðslu sem sé nauðsynleg fyrir hagkerfið.
Því eins og Elliott segir – laun eru mikilvæg.