fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Að velja karl úr boltanum

Egill Helgason
Sunnudaginn 29. desember 2013 23:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hún er lífleg umræðan um íþróttamann ársins.

Reglan við þetta val er að boltakarl vinnur ef nokkur möguleiki er á.

Ég var að velta þessu fyrir mér í fyrrakvöld – af einhverjum ástæðum – ég hugsaði, nú fer að koma að vali íþróttamanns ársins, skyldu þeir hafa vit á því að velja hana Anitu? Það væri nú snjallt hjá þeim. Og svo hugsaði ég, nei, auðvitað ekki, þeir velja einhvern úr boltanum.

Og þannig fór það líka – kom nákvæmlega ekkert á óvart.

Þarna er ung og glæsileg íþróttakona sem vinnur fullt af verðlaunum – í einstaklingsíþrótt nota bene. Hún er kosin efnilegasti íþróttamaður Evrópu í sinni grein.

En nei, það er boltamaðurinn sem er valinn, hann hefur reyndar ekki unnið nein verðlaun, en hann spilar með liði í enska boltanum og kemur stundum inn á í leikjum á Englandi – en þar er Mekka íslenskra íþróttafréttamanna. Í huga þeirra verður ekki lengra komist en að spila á enskum fótboltavelli.

Nú vilja menn laga þetta með því að koma upp tvennum verðlaunum, einum fyrir konur, öðrum fyrir karla. Það er einhver púkalegasta hugmynd sem hefur heyrst.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi