fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Upplifunarferðamennska í Illulág

Egill Helgason
Fimmtudaginn 26. desember 2013 01:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í fréttum segir að hér sé fullt af ferðamönnum, en flestallt lokað.

Ég bý í miðbæ Reykjavíkur þar sem helst er von á að staðir séu opnir. Í dag var einn og einn veitingastaður opinn – mér sýndust þeir vera fullir af fólki.

Túristar hröktust um í norðanbálinu. Í svona átt er vindstrengur frá Esjunni yfir miðbænum, maður sem ég þekkti kallaði Lækjargötuna og Hljómskálagarðinn Illulág. Það á vel við í svona veðri.

Vindurinn stendur eiginlega beint á framhliðina á húsinu, ég hef verið að bíða eftir því að jólaseríurnar í garðinum fjúki.

Það er búið að auglýsa Reykjavík sem frábæran jólaáfangastað.

Og vissulega er þetta ákveðin reynsla fyrir ferðamenn, myrkur, skítaveður og allt lokað. Má kalla það upplifunarferðamennsku, að fjúka um í leit að einhverju sem er opið.

Reyndar er það svo að í lögum um helgidagafrið er kveðið á um að á aðfangadag jóla og jóladag sé óheimilt að hafa skemmtanir, viðskipta- og verslunarstarfsemi.

En gerir lögreglan núorðið eitthvað í því að framfylgja þessum lögum?

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi