Ég vona að mér verði fyrirgefið að hnupla þessari mynd af Vísi – ég verð að hrósa ljósmyndaranum.
Þetta er ein besta íslenska fréttamynd sem ég man eftir. Jón Júlíus Karlsson hefur náð að smella af á hárréttu augnarbliki.
Þarna er stéttasamvinnan í hnotskurn. Það er erfitt að greina hver er verkalýðsforinginn og hverjir eru úr hópi atvinnurekenda. Þessir aðilar ná svo líka saman í hinu volduga lífeyrissjóðakerfi.
En þarna er semsagt verið að fagna kjarasamningum sem virðist vera nokkuð útbreidd skoðun að séu smánarlega lélegir.