Vetrarsólstöður eru í dag.
Klukkan 17.11. Frá þeirri stundu fer sólin aftur að hækka á lofti.
Best að muna eftir að staldra við þá.
Í dag er semsagt stysti dagur ársins, hér í Reykjavík er hann ekki nema fjórir tímar.
Sólin kemur upp klukkan 11.22 og hún sest 15.31.
En nú fer daginn að lengja aftur.
Tíminn líður of hratt og hraðar eftir því sem maður eldist.
Víða er stuð á vetrarsólstöðum, til dæmis við Stonehenge á Englandi. Þar safnast fólk saman, syngur og klæðist fornlegum búningum. Flottast er að vera eins og drúídi eða prestur úr keltneskri heiðni. Hér á Íslandi höldum við jól sem má rekja til fornra sólhvarfahátíða.