Það er svo margt sem maður vildi fjalla um fyrir jólin, en kemst ekki yfir. Hér er til dæmis sérlega glæsilegur prentgripur sem er kominn út, List í 365 daga.
Þetta er sett upp eins og almanak – þarna getur að líta listaverk eftir 365 listamenn, hönnuði og ljósmyndara, margir eru í tölu þeirra bestu sem starfa á Íslandi. Með fylgja skýringatextar um listamennina og verkin. Dagatalið er semsagt fínn inngangur að íslenskri nútímamyndlist.
Þetta er framúrskarandi metnaðarfullt og flott, gefið út af bjartsýni og elju – ég læt hér fylgja með blaðsíðu með mynd eftir listamann sem ég held mikið upp á, Ívar Valgarðsson. Það má sjá meira með því að smella hérna – en gripinn má nálgast með því að smella hérna, hann er merkilega ódýr miðað við innihaldið.