Mér sýnist stórfrétt vera að fara framhjá okkur, nefnilega að Framsóknarmenn vilji svínakjöt á jólunum. Skoðanakönnun hefur leitt þetta í ljós.
Þeir vilja semsagt ekki lambakjöt, hangikjöt eða þá hina ofurþjóðlegu rjúpu.
Nei, svínakjöt. Það er fátt óþjóðlegra en svínakjöt. Það er næstum tákn um allt sem er óþjóðlegt.
Kemur svosem ekki á óvart að Píratar vilji „eitthvað annað“. Maður hefur þá grunaða um að borða hnetusteik á jólunum.
Sjálfur hef ég stundum verið grunaður um að vera hallur undir framsóknarmennskuna. Það hefur þó ekki alveg rímað við að mér finnst lambakjöt frekar vont á bragðið. Er eiginlega hrifnari af svínakjöti.
En nú kemur í ljós að þeir eru fleiri Framsóknarmennirnir sem þannig er ástatt fyrir.