Það er gríðarlegt flóð af matreiðslubókum og -þáttum sem steypist yfir þjóðina.
Þetta er mjög misjafnt að gæðum. Sumir kunna til verka, aðrir setja ost í allt, nota sósur úr krukku og skaðbrenna kjöt. Láta kunnáttuleysið ekki aftra sér frá því að gefa út bækur og gera þætti.
Drottning matreiðsluþáttanna er Nigella Lawson sem hefur verið mikið í fréttum undanfarið vegna skilnaðar og meintrar kókaínneyslu.
Hún er ekkert unglamb lengur, fædd 1960, en lítur furðu vel út. Fjölmiðlar í Bretlandi eru sífellt að velta fyrir sér útliti hennar, líkamsþyngd og hvort hún hafi farið í fegrunaraðgerðir.
Þættir Nigellu eru eins og ævintýraheimur að horfa á fyrir Íslendinga.
Mikið af því sem hún notar fæst raunar ekki hérna í fásinninu, maður borðar þessa ofgnótt semsagt bara með augunum, annað er svo rándýrt að það myndi setja meðalfjölskyldu á hausinn að nota það eins og Nigella. Við myndum varla setja stóra sneið af gorgonzola í matvinnsluvél til að búa til sósu.