Í þessari viku þarf maður að koma sér upp jólaskapi, þótt það sé ekki alltaf auðvelt. Þessi ljósmynd sem sýnir jólaskreytingar í Austurstræti snemma á sjötta áratugnum gæti hjálpað. Húsin tvö sem eru næst okkur vinstra megin á myndinni eru bæði horfin.
Myndin er tekin þaðan sem Morgunblaðshúsið stendur. Þarna er núna Ingólfstorg – sem varð ekki til fyrr en löngu eftir að þessi mynd er tekin og er satt að segja lítil bæjarprýði. Stóru kaggarnir tveir, greinilega amerískir, standa á grunninum á Hótel Íslandi sem brann 1944, þar var síðar Hallærisplanið svokallað.