fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Besta hlutverk Peters O’Toole

Egill Helgason
Mánudaginn 16. desember 2013 11:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peter O’Toole var af drykkfeldri kynslóð breskra leikara – þetta voru ægilegir bóhemar og fóru illa með sig. Richard Burton, Richard Harris, Oliver Reed, Albert Finney. Það þykir mesta furða að O’Toole hafi orðið 81 árs.

O’Toole var sérkennilegur leikari, hann gat verið alveg hræðilegur og alveg brilljant. Stundum jafnvel í sömu kvikmynd. Oft setti hann á sjálfstýringuna, það var eins og þetta væri allt fyrir neðan virðingu hans, en svo bregður fyrir dýpt og tilfinningu sem er einstök. Hann gat líka verið meinfyndinn.

Eitt frægasta hlutverk O’Toole var í leikritinu Jeffrey Bernard is Unwell eftir Keith Waterhouse. Leikritið fjallar um Jeffrey Bernard, drykkjumann, bóhem og blaðamann, sem þótti afar glæsilegur á unga aldri, en hnignaði svo með drykkjunni. Bernard skrifaði fræga pistla í tímaritið The Spectator um langt árabil þar sem hann lýsti lifnaði sínum. Mikið af pistlunum gerðust á kránni The Coach & Horses í Soho þar sem réði ríkjum Norman, dónalegasti barþjónn á Englandi.

Þegar Bernard var of fullur eða timbraður til að skrifa pistlana í Spectator eða týndur einhvers staðar, birtist ævinlega þessi litla klausa: „Jeffrey Bernard is Unwell“.

O’Toole og Bernard voru drykkjufélagar – það hefur sjálfsagt hjálpað til við túlkun O’Toole í þessu vinsæla leikriti.

Hér má sjá það í heild sinni.

http://www.youtube.com/watch?v=AbFjLo8gRBk#t=806

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi