Við Sigurveig vorum í búð í dag og þar taldi hún sig reka augun í álfahakk.
Álfakjöt gæti náttúrlega vakið mikla athygli, það yrði sjálfsagt eftirsótt á veitingastöðum og svo myndu væntanlega heyrast hávær mótmæli erlendis frá.
En við stæðum fast á réttinum til að nýta auðlindir okkar, þjóðinni til heilla.
Frú Sigurveig getur verið tilbúin með uppskrift innan skamms.