Nú er rætt um að sé mesta góðæristímabil sjávarútvegs á Íslandi.
Það kemur ýmislegt til – en ein meginskýringin er lágt gengi krónunnar.
Stórútgerðin þrífst vel á þessum tíma tíma gjaldeyrishafta. Meðan viðskiptalífið er lokað situr hún nokkuð ein að gæðunum – ásamt lífeyrissjóðunum.
Það er verið að skipta verðmætum á Íslandi upp á nýtt og þar eru útgerðarmenn að fá væna bita. Þeir fjárfesta ekki bara í útgerðinni heldur í því sem er kallað „óskyld starfsemi“.
Það sést á umsvifum Guðbjargar Matthíasdóttur í Vestmannaeyjum, hún er nýbúin að kaupa prentsmiðjuna Odda. Undir Odda eru líka Kassagerðin og Plastprent.
Þorsteinn Már Baldvinsson keypti Olís ásamt fleirum. Guðbjörg er stærsti eigandi Morgunblaðsins og Þorsteinn Már er líka í eigendahópnum.
Stærsta álitamál næsta misseris er kvótasetning makríls. Hermt er að makrílkvótinn sé virði 100 milljarða króna. Verðmætin felast svo ekki bara í makrílnum sem kemur upp úr sjó heldur í veðrýminu sem myndast og aukinni fjárfestingargetu.