Þetta er skemmtileg frétt á Vísi – segir að viðskiptavinum þyki skemmtilegt að hafa starfsmenn á plani bensínstöðvarinnar við Birkimel.
Þessi bensínstöð hefur verið þarna síðan ég var drengur. Ég reyni að fara þangað í hvert skipti sem ég þarf að setja bensín á bílinn. Mér leiðist að dæla sjálfur – það er ágætt að til séu starfsmenn sem sjá um það.
Starfsmennirnir á Birkimelnum er sérlega liðlegir, ljúfir og almennilegir. Það er sérlega gott að koma til þeirra.
Fyrir nokkrum árum leit út fyrir að allar bensínstöðvar yrðu sjálfvirkar, að kúninn yrði sjálfur að dæla bensíninu í tankinn. Það var látið eins og þetta væri sérlega spennandi framtíðarsýn. Eins hefur verið talað um útibú Landsbankans við Hagatorg, það er helst að skilja að það sé framför og viðskiptavininum í hag að þar séu engir lifandi starfsmenn, bara dauðar vélar sem sjá um verkin.
En margir kæra sig ekki um svoleiðis. Mannleg samskipti geta nefnilega verið alveg ágæt. Og þau geta líka verið atvinnuskapandi.
Fyrir nokkrum árum var kynnt sameining stórra fyrirtækja í eina einingu. Þá var sagt að til yrði stærsta þjónustuver á Íslandi. Í orðunum lá að þetta væri mjög jákvæð og spennandi þróun. En þannig var það auðvitað ekki – stór þjónustuver eru martröð.
Svona leit bensínstöðin á Birkimelnum einu sinni út. Hún hefur breyst, en þjónustan er ekki síðri en á ljósmyndinni.