„Hér í Reykjavík eru alltof margir æskumenn sem hafa á sér svo annarlegan blæ að maður gæti næstum haldið að þeir hefðu gengið á barnaskóla í Hollywood, unglingaskóla meðal „cowboys“ í Texas og loks tekið fullnaðarpróf í framkomu hjá einhverjum „smart guys“ í New York. Hér er nokkuð sem þarf athugunar og lagfæringar við, því það fólk sem hefur tapað tengslunum við uppruna sinn er ekki lengur fólk í þess orðs bestu merkingu.“
Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur birtir þennan texta á Facebook-síðu sinni. Hann er úr Þjóðviljanum 3. desember 1946, eins og sjá má á timarit.is.