Gunnar Smári segir að plebbísk viðhorf séu skýring á fylgi Framsóknarflokksins.
Plebbismi getur birst með ýmsum hætti – Gunnar Smári nefnir danska Þjóðarflokkinn og norska Framfaraflokkinn og andúð þeirra á útlendingum.
Ég minnist þess ekki að hafa heyrt neitt frá Framsóknarflokkum sem bendir til þess að hann eigi samleið með nefndum flokkum í þessum málum. Mörgum kann að vera í nöp við Framsókn og stefnu flokksins í til dæmis Evrópumálum, en hann hefur ekki róið á mið útlendingahaturs eða andúðar á innflytjendum.
Við skulum láta vera að gera úr Framsóknarflokknum eitthvað sem hann er ekki.
Annað sem Gunnar Smári nefnir sem plebbíska áherslu er „tal um réttlæti handa venjulegu fólki“.
Nú lofuðu fyrri stjórnarflokkar reyndar „skjaldborg“ um heimilin, það var af nákvæmlega sama meiði. Réttlæti handa venjulegu fólki.
Framsókn gekk svo í málið og tókst að fá Sjálfstæðisflokkinn til að fallast á aðgerðirnar sem ganga undir nafninu „leiðréttingin“.
Þetta er millifærsla á fjármunum, á það hefur verið bent að þetta sé í raun mjög í anda þess sem Framsóknarflokkurinn var að gera á Steingrímsárunum.
Hugmyndin er að taka pening frá fjármálastofnunum og afhenda skuldurum. Það verður aldrei hægt að segja að þessi aðgerð sé sérstaklega langt til hægri, enda mótmælir frjálshyggjuarmur Sjálfstæðisflokksins.
Framsóknarflokkurinn hefur hins vegar ákveðið innahússvandamál sem er yfirlýsingagleði Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar. Tal hennar er alveg á skjön við þær félagslegu áherslur sem hafa verið partur af stefnu Framsóknarflokksins og eru þar enn ef marka má stefnuskrána. Hún talar fremur eins og hægri sinnaður bandarískur repúblikani líkt og má heyra í þessu viðtali á Rás 2. Í morgun vitnar hún í sjálfa Margréti Thatcher á Facebook:
“The problem with socialism is that you eventually run out of other people’s money.”
Í þessu samhengi má minna á að fáum lá jafn þungt orð til frjálshyggjunnar og einmitt Steingrími Hermannssyni.
Að sumu leyti finnst manni eins og formanni Framsóknarflokksins sé þóknanlegt að Vigdís leiki lausum hala eins og hún gerir – hún er sífellt að storka andstæðingum Framsóknar og þeim sem vilja meina að flokkurinn sé holdtekja „plebbismans“, hvort sem Vigdís gerir það vitandi vits eða ekki.
Kannski eru til Framsóknarmenn sem hafa gaman að þessu, en það er ekki stjórnviska að leyfa Vigdísi að vera mest áberandi talsmaður flokksins.