fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Hvorki hægrið né vinstrið

Egill Helgason
Mánudaginn 9. desember 2013 19:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt finnst mér vera dagljóst eftir reynslu af stjórnmálum síðustu ára:

Mann langar hvorki að tilheyra íslenska hægrinu né íslenska vinstrinu.

Lýður Árnason læknir skrifar ádrepu um þetta á vef DV undir yfirskriftinni Vinstrið getur sjálfu sér um kennt:

„Vinstrið og Hægrið rífast sem aldrei fyrr.  Hægrið plægir nú akur fjármálanna og rótar öllu á hvolf. Kannski löngu tímabært að hætta áralangri leikmyndapólitík og koma til dyranna eins og við erum en ekki eins og við viljum vera. Ísland er ekki lengur rík þjóð.  Við skuldum yfir 2000 milljarða og erum ekki nema 330 þúsund hræður.   Heilbrigðiskerfið riðar og brestir í menntakerfinu.  Þessir meginpóstar velferðarinnar þurfa fé og ef við værum rík þjóð þyrftum við ekki að horfa upp á allar þær niðurfellingar sem nú standa fyrir dyrum.  Þróunaraðstoð, bótakerfið, menningin, allt fær risaskelli og Vinstrið brjálað.   Einn skiki á akrinum er þó algerlega friðlýstur.  Skiki útgerðarinnar og launar hann gjörninginn eins og sést á SMS-sendingum þingmanna.  Þessi friðlýsing gerir Vinstrið líka brjálað en þá spyr ég: Hvers vegna í ósköpunum voruð þið ekki búin að plægja þennan illgresisskika í tætlur á síðasta kjörtímabili og búa til úr honum þá vin sem þið lofuðuð fyrir kosningar?  Þessi drómi Vinstrisins hefur nú fært Hægrinu gullbakkann aftur eins og skilið var við hann og eftirleikurinn undrar engan.  Hægrið hefur klárlega fram yfir Vinstrið að nýta tímann til verka og þykir sumum miður.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð