Á forsíðu Fréttablaðsins í dag má lesa eftirfarandi fyrirsögn:
Erlendir nemendur fá nám ókeypis í fjárvana háskóla
Framsetningin er sérkennileg, vægast sagt – og heimóttarskapurinn ríður ekki við einteyming.
Íslenskir stúdentar hafa sótt háskóla á Norðurlöndunum og í Evrópu og lítið eða ekkert þurft að borga. Þetta auðgar menntir og menningu í landinu; manni hrýs hugur við tilhugsuninni ef við hér á Íslandi værum öll að mennta okkur hvert hjá öðru.
Nógu er nú samfélagið hugmyndalega innræktað.
Svo er líka hitt að hinir erlendu stúdentar efla Háskóla Íslands, þeir koma með alþjóðlega strauma og tengja Háskólann við erlendar menntastofnanir. Með erlendum stúdentum höfum við kannski smá möguleika á að koma Háskólanum í flokk hinna bestu – eins og hefur verið stefnt að.
Svo má nefna að flestir Íslendingar sem skara fram úr hafa farið til útlanda að mennta sig og forframast, allt frá tíma Sæmundar fróða, í gegnum Jónas og til Bjarkar.