fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Eins og spáð var

Egill Helgason
Sunnudaginn 8. desember 2013 22:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessa færslu setti ég hér inn á vefinn 25. október. Þetta er að ganga nákvæmlega eftir:

„Greinendur stjórnmála telja sig sjá ákveðið munstur í fjárlagagerðinni og því hvernig umræðan um fjárlögin er að þróast.

Kenningin er svona. Áður en Alþingi samþykkir fjárlögin verða framlög til heilbrigðismála aukin talsvert – kvartanirnar af Landspítalanum eru orðnar að nánast samfelldum klið sem hjómar í fjölmiðlum alla daga. Það liggur við að að þjóðin sé lögst í rúmið af þunglyndi yfir þessu.

Ríkisstjórnin getur varla annað en gert eitthvað í málinu. Og auðvitað verður jákvætt fyrir hana að rétta hag heilbrigðiskerfisins – þetta getur jafnvel fallið undir það sem kallast væntingastjórnun.

En á móti er ekki við því að búast að hlutur annarra sem hafa orðið fyrir niðurskurði verði leiðréttur að marki. Þar verður líklega frekar bætt í niðurskurðinn – og réttlætt með að fé hafi fundist fyrir spítalann.“

Nú segir í fréttum að barna- og vaxtabætur verði skornar niður, að framlög til þróunarmála verði lækkuð og að teknar verði 215 milljónir í viðbót af Ríkisútvarpinu.

Margir eiga sjálfsagt eftir að verða reiðir og segja að með lækkun bóta og þróunaraðstoðar sé verið að taka frá hinum snauðustu – en frá bæjardyrum stjórnarflokkanna meikar þetta sens í pólitískum skilningi, upp til hópa hafa stuðningsmenn þeirra hafa ekki sérstakan áhuga á þessum málaflokkum. Og aukin framlög í heilbrigðiskerfið er vinsæl aðgerð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“