fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Sjálfvirk gagnrýni á RÚV

Egill Helgason
Laugardaginn 7. desember 2013 19:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ýmislegt sagt um RÚV þessa dagana. Ekki er það allt jafn vel framsett eða hugsað – og svo er greinilegt að margir eru ota sínum tota, bak við eru duldir hagsmunir. Það má alveg ljóst vera að flokkarnir sem sitja í ríkisstjórn eru ekki sérlega vinveittir Ríkisútvarpinu – hér á árum áður var RÚV oft í nokkru skjóli af Framsóknarflokknum en svo er ekki lengur.

Vinstri flokkarnir og stuðningsmenn þeirra hafa risið upp til varnar Ríkisútvarpinu, en málflutningurinn er með þeim hætti að málið er komið lóðbeint ofan í skotgrafir. Það var Steingrímur J. Sigfússon, sem sjálfur stóð fyrir miklu niðurskurði á RÚV í tíð síðustu ríkisstjórn, sem reis upp á Alþingi til að mótmæla síðasta niðurskurði. Það var ekkert sérlega trúverðugt.

Ég sé að vinstri sinnaðir vinir mínir sem hafa áhyggjur af Rúv eru að hampa þessari grein eftir Mikael Torfason.

Líklega hafa þeir ekki lesið hana, heldur taka sjálfvirkt undir alla gagnrýni á RÚV.

Þarna stendur til dæmis – innan um öll lækin af vinstri vængnum – að hægt sé að reka RÚV fyrir brot af nefskattinum sem nú er innheimtur. Það er einfaldlega rangt – það er afskaplega lítið hægt að skera meira nema menn vilji ganga af RÚV dauðu.

Enn meiri niðurskurður á tekjum RÚV hefur líklega í för með sér að hlutur erlends efnis eykst – það er miklu ódýrara en hið innlenda – nema þá að ákveðið yrði að stytta dagskrána í svona tvo tíma á kvöldi.

Þarna stendur líka að Sjónvarpið hafi farið meira og meira út í að keppa við Stöð 2 eftir ohf-væðinguna og þá um erlent efni. Það er líka rangt, hlutfall íslensks efnis í Sjónvarpinu hefur sjaldan verið hærra – og mikið af því er svokallað menningarefni. Það er von á meira seinna í vetur.

Samkeppnin við Stöð 2 var satt að segja miklu grimmari á árunum þegar ég var í fréttum á Stöð 2 1996-1998. Þá tók Sjónvarpið upp á því að færa fréttatíma sinn beinlínis til að reyna að kæfa fréttatíma Stöðvar 2 sem sótti fast á hvað varðaði áhorf og gæði.

Hins vegar mætti vel hugsa sér að RÚV væri ekki á auglýsingamarkaði. En nú stefnir hugsanlega í að farin verði þveröfug leið, frá menntamálaráðherra hafa heyrst tillögur um að taka af RÚV 215 milljónir til viðbótar á móti því að aflétta takmörkunum á auglýsingum. Það eru heldur léleg skipti því RÚV mun í mesta lagi fá 80 milljónir í aukið auglýsingafé á móti 215 milljónunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð