Stundum er, eins og sagt er, ekki bæði hægt að eiga kökuna og éta hana. Íslensk útgáfa af þessu er að það verði ekki bæði haldið og sleppt.
Utanríkisráðherra er hissa og reiður yfir því að Evrópusambandið vilji ekki lengur veita okkur svokalla IPA styrki.
Þetta kippir fótum undan ýmsum verkefnum sem hafa verið í gangi, meðal annars á sviði vísinda og byggðamála.
En því hefur verið haldið fram að IPA styrkirnir séu hluti af hinu ógurlega „aðlögunarferli“. Og því, eðli málsins samkvæmt, vondir. Einn þingmaður Framsóknar talaði meira að segja um þá sem „illa fengið fé“ í þingræðu.
Við ættum að vera fegin að vera laus við svoleiðis.