Hér eru úrslitin úr prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Það vekur athygli að í fyrsta sæti er utanbæjarmaður sem flutti lögheimili sitt tímabundið til Reykjavíkur. Hann er að vísu margreyndur sveitarstjórnarmaður, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Það er umhugsunarvert að Halldór er yfirlýstur stuðningsmaður aðildarviðræðna við Evrópusambandið og var í samningshópi um byggða- og sveitarstjórnarmál í aðildarviðræðunum. Þetta hefur ekki átt sérstaklega upp á pallborðið innan Sjálfstæðisflokksins í seinni tíð.
En nú er hann semsagt kominn í fremstu víglínu flokksins – það verður forvitnilegt að sjá hvernig honum verður ágengt í kosningabaráttunni.
Júlíus Vífill Ingvarsson, sem hefur verið oddviti flokksins í borgarstjórn síðan Hanna Birna Kristjánsdóttir fór í landsmálin, hlýtur að vera sáróánægður með stöðu sína. Hann fær varla annað tækifæri til að komast í fyrsta sætið.
Svo er athyglisvert hversu illa þær koma út úr prófkjörinu konur sem ætluðu sér stóra hluti: Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Hildur Sverrisdóttir og Áslaug Friðriksdóttir. Þær eru fyrir neðan karlana á listanum og eftirtektarvert hve atkvæðatala þeirra er lág.
Það er reyndar spurning hvort prófkjörið sé bindandi – þátttakan var ekki mikil. Það er auðvitað hugsanlegt að hrært verði í listanum til að jafna kynjahlutföllin. Sjálfstæðismenn eru nú með fimm borgarfulltrúa, eins og staðan er lítur út fyrir að Hildur Sverrisdóttir sé í baráttusætinu. En það verður að segjast eins og er að hópurinn virkar ekki sérlega samstæður.