fbpx
Föstudagur 19.desember 2025
Eyjan

Eyðileggja Norðmenn olíudrauma Íslendinga?

Egill Helgason
Fimmtudaginn 3. október 2013 12:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Noregur getur eyðilagt olíudrauma Íslendinga, má lesa í Aftenbladet í Noregi.

Nýir stjórnarflokkar í Noregi hafa ákveðið að hætta við olíuleit á Jan Mayen svæðinu og það getur haft mikil áhrif á fyrirætlanir Íslendinga um olíuvinnslu þar.

Möguleikar Íslands hafa ekki síst legið í því að vera í samfloti við Norðmenn.

Aftenbladet hefur eftir Terje Hagevang, stjórnarmanni í olíufélaginu Eykoni, og þein sem hefur málað olíuframtíð Íslendinga í hvað björtustum litum, að hann hafi búist við að nýja ríkisstjórnin hætti við olíuleit við Lófóten en hann hafi ekki órað fyrir að hið sama yrði uppi á teningnum við Jan Mayen.

Hann segir ennfremur að þetta sé illa gert af Norðmönnum, því Íslendingar þarfnist þess að upplifa svipað olíuævintýri og Norðmenn hafa gert síðustu áratugina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina