Efni Kiljunnar í kvöld er fjölbreytt en nokkuð á þjóðlegum nótum.
Gagnrýnendur þáttarins fjalla um tvær bækur með sögulegu efni: Af jörðu eftir Hjörleif Stefánsson og Faldar og skart eftir Sigrúnu Helgadóttur, sú bók fjallar um íslenska faldbúninginn.
Svanhildur Óskarsdóttir segir frá nokkrum handritum að Eglu, meðal annars því sem var kallað Vitlausa-Egla. Svanhildur verður fastagestur í þáttunum annað veifið í vetur.
Við fjöllum um nýútkomið safn með Reykjavíkurljóðum sem nefnist Ljóð í leiðinni. Í safninu eru ljóð eftir núlifandi skáld, sum eru ung og óþekkt, önnur eldri og njóta sum almennrar viðurkenningar.
Eiríkur Örn Norðdahl flytur ljóð úr nýrri bók sem nefnist Hnefi eða vitstola orð.
Við segjum frá örlögum samkynhneigðra í Þriðja ríkinu – um þau má lesa í bókinni Mennirnir með bleika þríhyrninginn.
Gísli Marteinn Baldursson segir frá uppáhaldsbókum sínum og svo er Bragi í lok þáttarins.
Faldbúingurinn er elstur íslenskra þjóðbúninga, við fjöllum ögn um hann í Kiljunni í kvöld. Myndin er frá 1835, úr ferð Gaimards til Íslands.