Ummæli fangelsismálastjóra vekja athygli, hann vill ekki að fangar komi úr fangelsum lítandi út eins og holdanaut.
Fangelsismálastjórinn hefur óneitanlega nokkuð til síns mál. Hópur þekktra brotamanna sem nú er fyrir dómi lítur út eins og hann hafi stunda stanslausa vöðvarækt upp á síðkastið. Þeir eru sterklegir og þrútnir.
Það er kannski ástæðulaust að ofbeldismenn noti tímann í fangelsum til að koma sér í form til að vera enn duglegri og færari í að beita ofbeldi.
Það eru auðvitað til aðrar íþróttir sem má stunda í fangelsum og hafa ekki sömu áhrif.
Til dæmis badminton – sem á íslensku hefur stundum verið nefnt hnit. Holl og góð íþrótt.
Við getum bara haldið áfram í b-unum. Borðtennis, boccia, blak.