Það er mikill doði yfir stjórnmálunum þessa dagana.
Þingmenn kvarta yfir því að forystumenn ríkisstjórnarinnar sjáist ekki á Alþingi – Sigmundur Davíð mun vera í fríi í útlöndum.
Stundum heyrist í ráðherrum segja að eitthvað sé á leiðinni – en þeir eru ekki samstiga um tímasetningarnar. Stjórnin virkar furðu kraftlítil miðað við fyrirheitin sem voru gefin í kosningunum í vor.
Stjórnarandstaðan er mjög veikluð, fyrri ríkisstjórnarflokkar biðu náttúrlega afhroð í síðustu kosningum og langt í að þeir nái vopnum sínum. Björt framtíð virkar einhvern veginn sem mjög værukært stjórnmálaafl.
Það er eins og ráðherrar hafi horfið inn í ráðuneyti og týnst þar innan um skjalabunka og embættismenn. Það er helst að heyrist eitthvað frá Vigdísi Hauks og Brynjari Níelssyni, en það er ekki víst að stjórnarliðar kæri sig um að þau séu andlit ríkisstjórnarinnar út á við.