Merkilegt er að sjá spár um að fjöldi farþega sem fer um Keflavíkurflugvöll verði 6 milljónir árið 2023.
Þetta er rosaleg aukning frá því sem nú er.
Það er erfitt að meta svonalagað, en flugumferð í heiminum hefur stóraukist frá því Leifsstöð var tekin í notkun 1986. Þá var mikið talað um að flugstöðin væri alltof stór – Ólafur Ragnar Grímsson var einn þeirra sem mikið fáraðist yfir því – en svo kom á daginn að hún var alltof lítil.
Hún hefur verið stækkuð í áföngum síðan og þarf að stækka hana enn meir.
Ferðatíðni Icelandair hefur farið mjög vaxandi. Það byggir að miklu leyti á auknu flugi með farþega yfir Atlantshafið. Icelandair flytur farþega frá Evrópu, ekki síst Norðurlöndunum, til Íslands, þeir skipta um vélar og halda áfram til Ameríku. Og öfugt. Maður getur flogið yfir hafið og það eru sama og engir Íslendingar í vélunum.
Spárnar hljóta að byggja á því að miklir vaxtarmöguleikar séu í þessu flugi.
Það eru þó ýmsar breytur sem hlýtur að þurfa að taka tillit til. Norwegian er ört vaxandi flugfélag sem nýtur vinsælda. Það flýgur frá ýmsum stöðum á Norðurlöndunum og ætlar sér nú aukinn hlut í Ameríkuflugi eins og lesa má hér.
Norwegian er ört vaxandi flugfélag sem ætlar í samkeppni við Icelandair í Ameríkuflugi.