Eures vinnumiðlunin hélt kynningarfund um störf í Noregi á Hótel Grand í gær, eins og sjá má í þessari auglýsingu.
Lesandi síðunnar sendi þessar línur um fundinn:
„Mig langar að benda þér á að í dag kynntu nokkur mjög stór norsk fyrirtæki starfsemi sína á Hótel Grand. Ég fór sjálfur (er iðnaðarmaður) og fékk nett sjokk að sjá hvað margir voru mættir. Þetta var ekki ómenntað, atvinnulaust fólk heldur hámenntað eða miðmenntað fólk með vinnu og vill bara fara burt héðan.
Básinn fyrir heilbrigðisstarfsfólk var fullur af fóllki og ráðningarstofa fyrir iðnaðarmenn var full af fólki líka, margir sem stóðu þar voru meira að segja í merktum vinnufötum frá íslenskum fyrirtækjum (segir kannski margt um löngun fólks til að fara). Skora á þig að ræða þetta, fólksflótta eða öllu heldur braindrain.“