fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Breska íhaldið, Sjálfstæðisflokkurinn og reiðhjólin

Egill Helgason
Mánudaginn 5. ágúst 2013 17:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Milli Sjálfstæðisflokksins á Íslandi og Íhaldsflokksins breska hafa lengi verið gagnvegir. Mörg stefnumálin hefur Sjálfstæðisflokkurinn tekið upp eftir breska Íhaldinu og leiðtogar þess hafa oft verið í miklum metum meðal Sjálfstæðismanna á Íslandi.

Auðvitað ekki síst Margaret Thatcher, hún var dáð af hægrimönnum á Íslandi, ólíkt því sem var á meginlandi Evrópu. Þar var hún alltaf óvinsæl.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið mikið af Evrópustefnu sinni upp eftir svokölluðum eurosceptics innan breska Íhaldsflokksins. Hluti þeirra hefur reyndar leitað í flokk sem nefnist Ukip eða Sjálfstæðisflokkur Bretlands. Það er samt einkenni á leiðtogum íhaldsmanna í Bretlandi að þegar þeir komast til valda verða þeir miklu mildari gagnvart Evrópusambandinu. Til dæmis segja bæði David Cameron og William Hague að Bretland megi alls ekki yfirgefa ESB.

En þessi pistill átti ekki að fjalla um ESB, heldur um hjólreiðar.

Meðal íhaldsmanna í Bretlandi hefur verið mikil reiðhjólavakning. Sjálfur David Cameron hefur sést á reiðhjóli, en frægasti hjólreiðamaðurinn í Íhaldsflokknum er þó Boris Johnson, borgarstjóri í London. Hjólið er nánast eins og partur af ímynd hans.

Það er semsagt hætt að vera til vinstri að hjóla eins og var hér áður. Þá kom þekktur fræðimaður sem stundaði hjólreiðar í sjónvarp og sagði frá því að börn hrópuðu á eftir sér:  „Bang, bang, kommúnisti, bang, bang!“

Nei – hægrimenn hjóla lika.

Í samræmi við þetta hefur líka ýmislegt breyst í umferðarmálum í London. Það má jafnvel segja að núorðið sé einkabíllinn óvelkominn í borginni.  Ökumenn einkabíla þurfa að borga peninga til að fá að aka inn í London. Það eru byggð háhýsi í City, við þau eru engin bílastæði og engir bílastæðakjallarar. Sama er að segja um hæsta hús Evrópusambandsins, The Shard, það stendur ofan á lestarstöð. Þangað er eiginlega ekki hægt að fara á einkabíl.

Hjólreiðar hafa verið að eflast mjög í London. Enn eru þær ekki áhættulausar, sjálfur myndi ég helst óttast að lenda undir strætisvagni á hjólinu – en í borginni hefur til dæmis verið komið upp kerfi leigureiðhjóla líkt og er í París.

Oft er íslenskir Sjálfstæðismenn fljótir að læra af Íhaldinu í Bretlandi, en svo er ekki í þessu tilviki. Í leiðurum Morgunblaðsins er enn talað um að verið sé að „þrengja að einkabílnum“ þegar áformað er að þétta byggðina aðeins í Reykjavík og draga úr bílaumferð og hér í pistli á Vef-Þjóðviljanum er líka talað um „hatur á einkabílnum“.

Þeir ættu kannski að fara á námskeið til Boris Johnson – eða Gísla Marteins?

Reiðhjól af þessu tagi eru til leigu víða um London, til skammtímanota. Leigan hefur verið kölluð „Boris’ Bikes“ til heiðurs borgarstjóranum, Boris Johnson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki