fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Jóhann G.

Egill Helgason
Þriðjudaginn 16. júlí 2013 14:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann G. Jóhannsson tónlistarmaður er látinn – það er harmafregn.

Jóhann bjó í Ljósvallagötu þegar ég var að alast upp á Ásvallagötunni. Hann var einn þeirra sem ég leit hvað mest upp til á þessum miklu popp- og rokkárum.

Á þeim árum hélt Jóhann úti framúrstefnuútgáfu hljómsveitarinnar Óðmanna. Þar voru þeir með honum Finnur Torfi Stefánsson og Reynir Harðarson. Hljómsveitin var undir greinilegum áhrifum frá Cream, spilaði oft lög eftir þá sveit. Svo urðu þeir geysilega metnaðarfullir – gáfu út tvöfalt albúm með frumsaminni tónlist sem sætti afar miklum tíðindum.

Ég var ekki nema tíu ára gamall, en flýtti mér upp í Fálka á Laugaveginum, keypti plötuna, setti hana á fóninn heima og hlustaði. Áður hafði ég reyndar eignast litla plötu með laginu Spilltur heimur. Það þótti afar heavy og fullt af ádeilu.

Ég þorði samt aldrei að yrða á þá Óðmennina þótt þeir væru alltaf á ferli í hverfinu  – á myndinni hérna má sjá hvað þeir voru svakalega miklir töffarar. Þessi mynd er tekin þegar þeir sömdu og léku tónlistina í Poppleiknum Óla sem var sýndur í Tjarnarbíói við feiki góðar undirtektir.

Jóhann samdi síðar fjölda af lögum sem hann flutti sjálfur eða þá fyrir aðra tónlistarmenn. Ég er samt ekki viss um að allir átti sig á því að lög eru eftir Jóhann þegar þau eru spiluð. Hann lætur eftir sig stórt og merkilegt lagasafn – ég þakka fyrir mig.

Picture_1023-1

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 9 klukkutímum
Jóhann G.

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt