fbpx
Miðvikudagur 23.júlí 2025
Eyjan

Getur stóriðjan ekki borgað eins og aðrir?

Egill Helgason
Laugardaginn 29. september 2012 09:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stóriðjunni í landinu er tæplega vorkunn þó hún haldi áfram að greiða  raforkuskatt sem var lagður á hana eftir hrun – til að aðstoða við að koma íslenska ríkinu aftur á réttan kjöl.

Það er stundum eins og þeir sem hafa yfirráð yfir helstu atvinnuvegum landsins telji að almenningur eigi að bera allar byrðarnar – þannig eru hjóðin í stórútgerðinni og það sama heyrist nú frá stóriðjunni. Miklir tilflutningar fjármagns hafa orðið til þessara greina.

Það er vísað í að samningur við ríkið hafi kveðið á um að þessi skattur næði bara til 2013. Það er reyndar ákveðinn lúxus að geta samið við ríkið um hvað maður greiðir í skatt – flestum einstaklingum og lögaðilum er ekki boðið upp á slíkt.

Þeir borga bara upphæðina á álagningarseðlinum.

Stóriðjan nýtur þess nú að innlendur kostnaður hefur lækkað mikið vegna falls krónunnar. Aðstæður hafa ekki breyst þótt nokkur ár séu liðin, krónan er enn mjög lágt skráð.

Það er varla ofætlun að stóriðjan greiði fyrir þetta – erlendis er það kallað windfall-skattur. Í öðru lagi viðurkenna flestallir að orkuverðið sem stóriðjan borgar er alltof lágt – meira að segja forstjóri Landsvirkjunar er þeirrar skoðunar – í raun þyrfti að taka upp alla orkusamningana.

Gleymum því heldur ekki að stóriðjan er í eigu erlendra auðhringa – þeir eru ekki góðgerðarfyrirtæki sem gefa neitt eftir heldur reyna af ítrasta mætti að hámarka hagnað sinn fyrir hluthafa. Íslenska ríkið á náttúrlega að umgangast stóriðjuna með sama hætti – að hámarka tekjur sínar af henni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Svarthöfði skrifar: Veit Guðrún Hafsteinsdóttir hvort hún er að koma eða fara?

Svarthöfði skrifar: Veit Guðrún Hafsteinsdóttir hvort hún er að koma eða fara?
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sigmar Guðmundsson: Stjórnarandstaðan reyndi ekki að koma neinum málum í gegn – var bara á móti öllu

Sigmar Guðmundsson: Stjórnarandstaðan reyndi ekki að koma neinum málum í gegn – var bara á móti öllu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir