fbpx
Miðvikudagur 18.febrúar 2026
Eyjan

Að kynda undir

Egill Helgason
Þriðjudaginn 4. september 2012 10:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er furðulegt ástand innan Vinstri grænna – sem oftar.

Ögmundur Jónasson náði aftur að vinna sig mjög í álit meðal stuðningsmanna flokksins vegna framgöngu sinnar í Nubo-málinu. En nú er hann búinn að fá femínista í flokknum upp á móti sér vegna jafnréttisbrots. Í stefnuskrá VG stendur beinlínis að flokkurinn sé feminískur – og sá armur flokksins er mjög kröftugur. Enn hefur þó ekki heyrst í Höllu Gunnarsdóttur,  einum helsta leiðtoga femínista innan VG, um þetta mál – hún er aðstoðarmaður Ögmundar í innanríkisráðuneytinu.

Ögmundur og Jón Bjarnason eru stöðugt í fréttum meðan þeir eru að valda usla innan Vinstri grænna.

Ef þeir færu úr flokknum yrði staða þeirra nokkuð önnur. Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason hurfu úr sviðsljósi fjölmiðlanna undireins og þau yfirgáfu VG. Lilja virðist eiga mjög erfitt með að sætta sig við þetta. En hvarvetna í heiminum er það svo að uppreisn innan ríkisstjórnar þykir meiri fréttir en stofnun nýs smáflokks – eins og hart og það kann að virðast.

Þegar ástandið er svona sjá margir sér hag í að kynda undir.

Staða Ögmundar er mjög skrítin að því leyti að aðdáunini á honum virðist mest í hópi stjórnarandstæðinga. Þá er spurning hversu djúpt hún ristir – Sjálfstæðismaður sem ég ræddi við sagði að þetta væri allt á yfirborðinu. Það er athyglisvert að sjá andstæðinga ríkisstjórnarinnar taka málstað Ögmundar í deilunum um jafnréttisbrotið – en það virkar óneitanlega nokkuð hentistefnulegt.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Viðskiptaráð vill snúa klukkunni aftur um heila öld – forsetinn þarf að passa sig

Orðið á götunni: Viðskiptaráð vill snúa klukkunni aftur um heila öld – forsetinn þarf að passa sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Orkuöflun komin af stað eftir sjö ára bið – forgangur almennings til orku lögfestur

Jóhann Páll Jóhannsson: Orkuöflun komin af stað eftir sjö ára bið – forgangur almennings til orku lögfestur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón Þórsson, stjórnarformaður Sólheima: Íbúarnir aðlaga sig að þörfum fatlaðra en ekki öfugt – byrjaði sem tjaldbúðir

Sigurjón Þórsson, stjórnarformaður Sólheima: Íbúarnir aðlaga sig að þörfum fatlaðra en ekki öfugt – byrjaði sem tjaldbúðir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Þegar Bretar brutu blað með peningaleiðinni – Ný sýn og kröftug leið til að ná árangri í loftslagsmálum

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Þegar Bretar brutu blað með peningaleiðinni – Ný sýn og kröftug leið til að ná árangri í loftslagsmálum