Eitt í nýrri skipan ríkisstjórnarinnar – sem þó hefur ekki verið kynnt formlega – er mjög áhugavert.
Það er að gera Ögmund Jónasson að innanríkisráðuneyti.
Því það er ekki algengt í vestrænum ríkjum að menn yst af vinstri væng stjórnmálanna séu settir yfir ráðuneyti sem fer með málefni lögreglu og dómstóla.
Það vekur líka athygli að Ögmundur er ekki lögfræðingur, en síðustu tuttugu árin hafa dómsmálaráðherrar haft þá menntun. Þeir hafa líka allir verið úr Sjálfstæðisflokknum sem lagði áherslu á að hafa þetta ráðuneyti í stjórnartíð Davíðs Oddssonar. Ragna Árnadóttir er lögfræðingur sem starfaði í ráðuneytinu áður en hún varð ráðherra.
Áður höfðu dómsmálaráðherrar ýmsa menntun. Til dæmis má nefna að sjálfur Vilmundur Gylfason var dómsmálaráðherra í minnihlutastjórn Alþýðuflokksins árin 1979 til 1980.
Því má svo bæta við að undir innanríkisráðuneyti heyra einnig samgöngumál. Þá yrði Ögmundur fyrsti samgönguráðherra landsins sem kemur af höfuðborgarsvæðinu í háa herrans tíð, eða allt frá því að Matthías Á. Mathiesen fór með þennan málaflokk stutta hríð 1987 til 1988.