fbpx
Sunnudagur 27.júlí 2025
Eyjan

Exile

Egill Helgason
Miðvikudaginn 19. maí 2010 23:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

ExileMainSt

Mick Jagger segir að Rolling Stones hafi verið ungir, myndarlegir og heimskir þegar þeir gerðu plötuna Exile on Main Street. Hann segir þetta í tilefni af heimildarmynd um plötuna sem verið er að frumsýna í Cannes.

Ungir og heimskir kannski, en myndarlegir – fjandakornið, það var Mick Jagger aldrei. Frekar þá Keith á sínum yngri árum.

Exile hefur löngum verið talin eitt helsta meistaraverk Stones. Þetta er fyrst og fremst plata Keith Richards,  hún er hrá og virkar stundum losaraleg, þarna grautast saman rokk, blús og kántrí og alls konar stíltegundir – Jagger sagði sjálfur fyrir nokkrum árum að þetta væri ekki ein af uppáhaldsplötunum sínum.

Á þessum tíma hélt hljómsveitin til á herragarði í Suður-Frakklandi. Keith hékk með gítarleikaranum og söngvaranum Gram Parsons sem áður hafði verið í The Byrds og Flying Burrito Brothers. Sjálfur Richards farinn að nota heróín upp á hvern dag.

En Parsons var svo mikill sukkari að hann gekk á endanum fram af Keith og unnustu hans Anitu Pallenberg. Parsons andaðist stuttu síðar úr sukki. Hann var orðinn stórt nafn í tónlistinni, enda með eindæmum hæfileikaríkur, en kastaði því öllu frá sér. Hann er þó þjóðsagnapersóna og talinn einn upphafsmaður þess að blanda saman rokki og kántrítónlist.

En þetta var vissulega gullaldartími Stones, þegar þeir gáfu út plöturnar Beggar’s Banquet, Let it Bleed, Exile on Main Street og Sticky Fingers. Black ‘n’ Blue og Some Girls eru líka ágætar plötur – en síðan þá hefur hljómsveitin fremur verið að spila gömlu rulluna aftur og aftur.

Hér er Tumbling Dice af Exile – og jú annars, Mick er bara sætur.

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=OmfHV8Nw8Mw&feature=related]

Og hér er Gram Parsons með Wild Horses, lag af Sticky Fingers:

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=07oufBC_JjQ]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Að vera eða ekki vera umsóknarríki

Að vera eða ekki vera umsóknarríki
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Dagur fagnar heimsókn Ursulu von der Leyen – „Evrópa er því okkar náttúrulegi bandamaður“

Dagur fagnar heimsókn Ursulu von der Leyen – „Evrópa er því okkar náttúrulegi bandamaður“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segir stjórnarandstöðuna bergmála rússneskan áróður og lygar – „Af hverju vill hægrið berjast gegn vestrænum gildum?“

Segir stjórnarandstöðuna bergmála rússneskan áróður og lygar – „Af hverju vill hægrið berjast gegn vestrænum gildum?“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Ég er hræddur um að stjórnarandstaðan sé gengin af göflunum“

„Ég er hræddur um að stjórnarandstaðan sé gengin af göflunum“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Veit Guðrún Hafsteinsdóttir hvort hún er að koma eða fara?

Svarthöfði skrifar: Veit Guðrún Hafsteinsdóttir hvort hún er að koma eða fara?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigmar Guðmundsson: Stjórnarandstaðan reyndi ekki að koma neinum málum í gegn – var bara á móti öllu

Sigmar Guðmundsson: Stjórnarandstaðan reyndi ekki að koma neinum málum í gegn – var bara á móti öllu