
Ólafur Ragnar segir að staða Íslands utan Evrópusambandsins komi Íslendingum til góða í framboðinu til Öryggisráðsins.
En eru ekki allir sammála um að þetta framboð sé vonlaust? Ísland eigi ekki séns?
Þó ekki væri nema vegna þess er furðulegt að við skulum ekki vera löngu hætt við þetta. En utanríkisráðuneytið er enn á útopnu eins og þetta sé meiriháttar keppni.
Annars var Alþýðubandalagið og Ólafur Ragnar á móti EES samningum á sínum tíma. Í staðinn var boðið upp á eitthvað sem kallaðist „útflutningsleiðin“.
Einn flokksmaður í Alþýðubandalaginu sagði á sínum tíma að þær hugmyndir hefðu verið „hrein della“.