
Orðið fordómar er mjög vandmeðfarið. Stundum er það einfaldlega notað til að kveða niður skoðanaskipti. Og í fréttum er það nánast óbrúklegt.
Sjáið til dæmis þessa frétt sem er frá fréttaritara RÚV í Kaupmannahöfn.
Væru það fordómar ef gamlir íbúar borgarinnar Malmö væru ósáttir við að borgin yrði mestanpart íslömsk eftir nokkur ár? Eru það fordómar að finnast fullmikið að hafa tuttugu moskur í borginni?
Voru þeir einhvern tíma spurðir hvort þeir vildu hafa það svoleiðis?