
Ég hef ekki mikið vit á pólítík í Bandaríkjunum.
En einhvern veginn finnst manni gráupplagt að Hillary og Obama fari saman í framboð.
Hún sem forseti, hann sem varaforseti. Eða öfugt.
Ég veit ekki hvort þau næðu kjöri – kannski vilja Bandaríkjamenn frekar karlana úr Repúblikanaflokknum. Mér finnst þeir ekki bjóða af sér góðan þokka.
En ef þau kæmust í Hvíta húsið myndu þau ná að heilla heimsbyggðina og breyta viðhorfum til Bandaríkjanna ansi mikið.