fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026
Eyjan

Hvar er meðalhófið?

Egill Helgason
Sunnudaginn 3. febrúar 2008 21:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er ekki til eitthvað sem heitir meðalhófsregla?

Það er víst að henni er alls ekki beitt þegar reykingamenn eiga í hlut. Ríkið selur sígarettur, en er smátt og smátt að banna fólki að reykja þær. Auðvitað væri miklu hreinlegra að leggja einfaldlega bann við innflutningi og sölu efnisins.

Sú hugmynd að reka tóbaksnotendur út af veitingahúsum og hrekja þá í staðinn út í öllum veðrum til að reykja er vond. Í henni er allavega ekkert meðalhóf. Þetta hefur líka skapað fleiri vandamál en það leysir – samanber ófriðarölduna sem gekk yfir bæinn eftir að reykingabannið gekk í gildi í sumar.

Sjálfur hætti ég reykja fyrir löngu og tek fram að mér finnst frekar ljótt að sjá ungt fólk með sígarettur. En það er furðulegt að tóbaksnotendur geti ekki fengið að vera í sérstökum reykherbergjum. Svoleiðis herbergi eru einstaklega ógeðsleg – en fólki er algjörlega í sjálfsvald sett hvort það fer þangað inn.

Þá þarf enginn að fá krabbamein vegna óbeinna reykinga.

Meðan er sérstakt reykherbergi á Alþingi fellur þetta bann líka um sjálft sig. Það er ekki hægt að hafa tvenn tóbaksvarnalög í landinu – ein fyrir alþingismenn (sem setja þau) og hin fyrir sauðsvartan almúgann.

Reyndar virðist vera að lögin hafi verið svo illa samin að þau séu beinlínis fallin um sjálf sig. Það virðist vera á huldu hver á að framfylgja þeim.

Svo er eitt í þessu í viðbót – og það er fagurfræðilegt – það er fátt daprara og ljótara en að sjá fólk hímandi utan við húsveggi reykjandi sígarettur. Fyrir nú utan stubbana sem það dreifir um sig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?