
„Ég er ekki skúrkur,“ segir Vilhjálmur Þ. í viðtali við DV í dag. Þessu er slegið upp á forsíðu blaðsins.
Menn átta sig kannski ekki á því en þessi ummæli enduróma fræg orð úr stjórnmálasögunni. Það var þegar Richard Nixon sagði á blaðamannafundi 17. nóvember 1973:
„I am not a crook.“
Nixon ætlaði að reyna að snúa taflinu sér í hag með þessari ræðu en hann átti þá mjög í vök að verjast vegna Watergate málsins. Það fór á annan veg – orð hans höfðu þveröfug áhrif – Nixon lét af embætti í ágúst 1974.
— — —
Annars vekur mikla athygli í viðtalinu hversu mikið Vilhjálmur leggur upp úr því að hann njóti stuðnings Davíðs Oddssonar. Vegna stöðu sinnar í Seðlabankanum er Davíð auðvitað ekki til frásagnar um þetta atriði.
En það er auðvitað ekki Davíð sem er formaður flokksins.