
Það er búið að mennta mikið af fólki sem kann að búa til skipurit.
Einu sinni voru í Háskólanum deildir eins og heimspekideild, læknadeild, guðfræðideild og verkfræðideild.
Svo hefur þetta ekki þótt nógu gott. Það þarf að fikta í þessu, en enginn veit í rauninni til hvers. Þeir sem hafa eitthvað fram að færa í akademískum heimi reyna náttúrlega frekar að gera eitthvað sem skiptir máli.
Nú er búið að setja á stofn eitthvað sem heitir hugvísindasvið við Háskóla Íslands.
Undir hugvísindasvið heyrir íslensku- og menningardeild en þar á íslenskan meðal annars samleið með kvikmyndafræði og táknmálsfræði.
Svo er það sagnfræði- og heimspekideild og í þriðja lagi guðfræðideild.
En er guðfræði hugvísindi?