
Þetta segir um ályktun flokkstjórnarfundar Vinstri grænna:
„Í ályktun flokksráðsins segir, að áform um víðtæka einkavæðingu innan heilbrigðis- og félagsþjónustunnar, í menntakerfinu og á sviði samgangna séu alvarlegt tilræði við velferðarþjóðfélagið.
„Ráðherrar úr báðum stjórnarflokkunum eru farnir að taka opinberlega undir með samtökum atvinnurekenda og fjármagnseigenda um einkavæðingu almannaþjónustunnar,“ segir m.a. í ályktuninni.“
Það væri forvitnilegt að heyra meira af þessum áformum ríkisstjórnarinnar. Ég man ekki eftir að hafa heyrt af þeim.
Ég held satt að segja að enginn þurfi að hafa áhyggjur af því að hlutur ríkisins í íslensku hagkerfi og atvinnulífi sé að minnka. Hann er mjög stór nú þegar – og svo verður áfram.
Og ríkið tekur til sín ofboðslega mikið af tekjum landsmanna.