
Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um franska rithöfundinn Alain Robbe Grillet sem lést fyrr í vikunni, 85 ára gamall.
Robbe Grillet var einna fremstur í þeim hópi sem kenndur hefur verið við nýju skáldsöguna – le nouveau roman – en það var bylgja í skáldskap sem reis hvað hæst á árunum um og upp úr 1960.
Hann kom nokkrum sinnum til Íslands og meðal þess sem verður sýnt í þættinum er myndbrot frá frægri uppákomu á bókmenntahátíð í Reykjavík 1987 þar sem Guðbergur Bergsson segir nokkrum frægum rithöfundum til syndanna á málþingi í Norræna húsinu.
Í þeim hópi var Robbe Grillet og Isabel Alliende.
Þetta þótti talsvert hneyksli á sínum tíma.
Af gestum í þættinum má nefna Gérard Lemarquis, Ara Alexander, ljóðskáldið Ingólf Gíslason og sænska höfundinn Fredrik Härén, en Salka hefur gefið út bók eftir hann um sköpunargáfuna sem nefnist Hugmyndabókin.
Páll Baldvin og Kolbrún fjalla um Sköpunarsögur, viðtalsbók Péturs Blöndals við íslenska rithöfunda, og Bragi er líka á sínum stað.
*Myndin er úr kvikmyndinni Síðasta ár í Marienbad en handritið að henni er eitt frægasta verk Robbe-Grillets.