
Hverri kynslóð og hverjum hópi finnst sinn skemmtistaður merkilegur.
Þannig finnst þeim sem voru í Hollý í gamla daga að það hafi verið stórmerkilegur staður.
Fólkinu sem hefur verið þaulsetið á Sirkus finnst það afar merkur staður. Ég man eftir staðnum sem Grand Rokki – sem var ógeðsleg búlla.
Í mínum huga er Hótel Borg merkasti skemmtistaður allra tíma.
Seinna komu svo staðir eins og Geirsbúð, Bíóbarinn, Kaffi List, Kaffibarinn.
Allir mjög merkilegir. Og fullir af endurminningum. En flestir horfnir.
(Tek það svo fram að fyrir mér má alveg vernda húsið þar sem Sirkus hefur sína starfsemi.)